Trommu- og samspilskennari

Laus er til umsóknar allt að 50% ótímabundin staða trommu- og samspilskennara frá 1. ágúst 2021 við Tónlistarskóla Húsavíkur. Starf tónlistarkennarans er að skipuleggja og miðla á faglegum grunni þekkingu á tónlist og færni í hljóðfæraleik og samspili til nemenda í einka-, sam- og hópkennslu, með hliðsjón af óskum nemenda og foreldra, aðalnámskrá tónlistarskóla og skólanámskrá Tónlistarskóla Húsavíkur. Starfshlutfall ræðst af aðsókn nemenda og skipulagi starfsins hvert skólaár fyrir sig og gæti þróast upp í fullt starf ef aðstæður og aðsókn leyfa. 

Menntunar- og hæfniskröfur 

  • Menntun í og víðtæk reynsla af trommuleik og hljómsveitarsamspili, ásamt kennslureynslu í tónlistarskóla. 
  • Ástríða fyrir tónlist og tónlistarkennslu.
  • Góðir skipulags- og samskiptahæfileikar.  
  • Hreint sakavottorð. 

TrommukennariUmsóknarfrestur er til og með 21. maí 2021. 

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi FT eða FÍH og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Umsóknum skal skila á rafrænu formi til skólastjóra tónlistarskólans, Guðrúnar Ingimundardóttur, á netfangið runaingi@tonhus.is. Umsóknum skal fylgja greinargott yfirlit yfir nám og störf og ábendingar um meðmælendur.

Tónlistarskóli Húsavíkur hefur verið starfræktur frá árinu 1961. Skólinn hefur aðsetur í Borgarhólsskóla og starfar náið með grunnskólum í sveitarfélaginu, Framhaldsskóla Húsavíkur og leikskólanum Grænuvöllum. Tónlistarskólinn er með útibú í Öxarfjarðarskóla og kennir nemendum á öllum aldri í Norðurþingi.  Nánari upplýsingar veitir skólastjóri tónlistarskólans í síma 464-7290 og á netfangið runaingi@tonhus.is 

Norðurþing er öflugt sveitarfélag sem einkennist af fjölbreyttu mannlífi og miklum sköpunarkrafti manns og náttúru.