Námsgreinar

Merki Tónlistarskóla HúsavíkurBoðið er upp á nám á allflest hljóðfæri og söng. Nemendur skólans geta einnig verið innritaðir í kór eða hljómsveitarstarf án þess að vera í einkatímum í tónlist.

Tónlistarskólinn býður upp á tónlistarnám í hóp- og samkennslu fyrir elsta árgang leikskólans Grænuvalla, 2.-5. bekk Borgarhólsskóla og 1.-7. bekk Öxarfjarðarskóla. Einnig er boðið upp á tónlistarnám í hópum sem valgrein fyrir 8., 9. og 10. bekk.

Að öðru leyti fer tónlistarnám fram í einkatímum en einnig er hægt að deila kennslustund með öðrum nemanda sé þess óskað. Nemendur geta sótt um tónlistarnám í 60 mín., 40 mín., eða 30 mín á viku. Sótt erum um námið rafrænt á heimasíðu skólans.

Sjá nánar: Skólinn, Innritun, þjónustusamningur og skólagjöld.

Samkvæmt aðalnámskrá tónlistarskóla er tónlistarnámi skipt í þrjá megin áfanga; grunnnám, miðnám og framhaldsnám. Hverjum námsáfanga fyrir sig líkur með áfangaprófi í hljóðfæraleik, söng og tónfræðigreinum.