Störf laus til umsóknar

logoTónlistarskóli Húsavíkur hefur verið starfræktur frá árinu 1961. Skólinn hefur aðsetur í Borgarhólsskóla og starfar náið með Borgarhólsskóla, Framhaldsskóla Húsavíkur og leikskólanum Grænuvöllum. Tónlistarskólinn er með útibú í Öxarfjarðarskóla og kennir nemendum á öllum aldri í öllu Norðurþingi. Frá árinu 1992 hefur verið í gangi samstarfsverkefni Tónlistarskólans og Borgarhólsskóla og leikskólans Grænuvalla sem hefur það að markmiði að bjóða öllum börnum á aldrinum 5-11 ára upp á markvissa tónlistarkennslu. Starf tónlistarkennarans er að skipuleggja og miðla á faglegum grunni þekkingu á tónlist og færni í hljóðfæraleik til nemenda sinna í einka-, sam- og hópkennslu, með hliðsjón af óskum nemenda og foreldra, aðalnámskrá tónlistarskóla og starfsreglum Tónlistarskóla Húsavíkur.
 
Menntunar- og hæfniskröfur
    •    Bakkalársgráða í harmoníkuleik eða klassískum gítarleik er skilyrði og nám í kennslu- og uppeldisfræðum er æskilegt.
    •    Ástríða fyrir tónlist, kennslu og uppeldismálum og eiga auðvelt með að vinna með börnum.
    •    Sjálfstæði í vinnubrögðum, góðir skipulagshæfileikar og framúrskarandi hæfni í samskiptum.
    •    Hreint sakavottorð.
 
Umsóknarfrestur er til og með 10. júní 2020.
 
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi FT eða FÍH og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Umsóknum skal skila á rafrænu formi til skólastjóra tónlistarskólans, Guðrúnar Ingimundardóttur, á netfangið runaingi@tonhus.is. Umsóknum skal fylgja greinargott yfirlit yfir nám og störf og ábendingar um meðmælendur.
 
Nánari upplýsingar veitir skólastjóri tónlistarskólans í síma 464-7292 og á netfangið runaingi@tonhus.is