Vortónleikar Tónlistarskólans
Guðni Bragason • 4. maí 2026

Vortónleikar skólans 2026
Mánudagur 4. maí kl 15:15 í Lundi
Salnum í Miðhvammi.
Mánudagur 4.maí kl 17:00 og 18:30 (tónlist fyrir alla)
Þriðjudagur 5.maí kl 17:00 og 18:30
Miðvikudag 6.maí kl 17:00
Þriðjudag 12.maí kl 17:00 (ryþmísk deild) Samkomuhúsið
Öll hjartanlega velkomin.
The body content of your post goes here. To edit this text, click on it and delete this default text and start typing your own or paste your own from a different source.

Eftir Guðni Bragason
•
13. apríl 2026
Tónlistarskólar á norðurlandi héldu sína uppskeruhátíð Nótuna í gær sunnudag í Laugaborg. Tónlistaskóli Húsavíkur átti þar þrjá fulltrúa það voru þær Bryndís Edda Benediktsdóttir, Sóley Ósk Bjarkadóttir og Svanhildur Sól Sigurbjarnadóttir. Þær ásamt öllum þeim sem komu fram stóðu sig afar vel og var dagskráin vönduð og flott. Óskum nemendum og kennurum til hamingju með árangurinn.

Eftir Guðni Bragason
•
10. apríl 2026
Birna Eyfjörð Þorsteinsdóttir tónlistarkona kom til okkar og var með masterclass fyrir nemendur unglingastigs Borgarhólsskóla. Þar var hún að kynna fyrir nemendum alla þá möguleika sem í tónlistinni býr og hvernig ein lítil hugmynd getur orðið að lagi eða stærra verki og hvernig vinna má með hugmyndir í tölvu og forritum sem í boði eru í dag. Þetta var afar skemmtilegt og hvetjandi fyrir nemendur og var henni vel tekið.

Eftir Guðni Bragason
•
28. nóvember 2025
Norðurþing stendur fyrir tendrun jólatrjáa á þremur stöðum í sveitarfélaginu. Á Húsavík verða ljósin tendruð þann 28. nóvember á Vegamótatorgi. Dagskrá hefst kl. 16:15 Sólveig Halla flytur hugvekju og Katrín sveitarstjóri ávarpar gesti. Band frá Tónlistarskóla Húsavíkur mun flytja nokkur lög og spila undir dansi í kringum jólatréð. Aldrei að vita nema rauðklæddir sveinar verði á svæðinu. Soroptimistakonur verða með heitt kakó til sölu. Enginn posi á staðnum.






