Vísan í tilkynningu frá Norðurþingi

 
Haust og vetrarstarfið er hér um bil komið á fullt skrið.

Fyrst ber að nefna að tónlistarskólinn á Húsavík er nú búinn að tengja sig við NÓRA kerfið og því hægt að nota frístundarstyrk Norðurþings til að greiða niður tónlistarnám. Það er mikið fagnaðrefni og mun þessi viðbót vonandi verða til þess að enn fleiri nýti sér frístundarstyrki sveitarfélagsins. Skráningarleiðin og greiðsla fyrir tónlistarskólann er örlítið frábrugðin því sem að er hjá íþróttafélögum og sumarfrístund. Foreldrar þurfa fyrst að skrá nemendur í nám hjá tónlistarskólanum og svo er gert upp í gegnum greiðslukerfi NÓRA inná vefslóðinni https://nordurthing.felog.is/. Tilkynninguna má sjá í heild sinni á facebook síðu tónlistarskólans.