Tónlistarskólinn á Húsavík

Tónlistaskóli Húsavíkur Norðurþing

Fréttir

Uppskeruhátíđ tónlistarskóla

Almennt - miđvikudagur 24.feb.10 10:29 - Lestrar 801
2010 tekiđ á tónleikum nemenda á unglingastigi
2010 tekiđ á tónleikum nemenda á unglingastigi
Sunnudaginn 28. febrúar verða haldnir nemendatónleikar í sal Borgarhólsskóla kl. 16:00. Tónleikar þessir eru haldnir í tengslum við hugmyndir  þær sem fram komu á svæðisþingi tónlistarskóla í byrjun yfirstandandi skólaárs. Enginn aðgangseyrir - Allir hjartanlega velkomnir

 
Eins og kynnt var á svæðisþingum tónlistarskóla í upphafi yfirstandandi skólaárs munu FT, FÍH og STS ýta úr vör „Uppskeruhátíð tónlistarskóla“ á vorönn 2010. Uppskeruhátíðin er hugsuð sem árlegur viðburður sem fái svigrúm til að þróast.

Markmiðin með uppskeruhátíð tónlistarskóla eru:
• Að bjóða upp á nýja vídd í starfsemi tónlistarskóla og vera hvetjandi innlegg bæði fyrir kennara og nemendur í starfi sínu.
o Að efla faglegt starf.
o Að standa fyrir faglegri og skemmtilegri tónlistarhátíð þar sem tónlistarnemendur fá viðurkenningu fyrir afrakstur vinnu sinnar og frammistöðu.
o Að stuðla að auknu samstarfi tónlistarkennara og –skóla.

• Að auka sýnileika og hróður tónlistarskóla á Íslandi.
o Að skapa vettvang sem virkjar tengsl tónlistarskóla við umhverfi sitt.

Til baka

moya - Útgáfa 1.7 2006 - Stefna ehf

Innskráning