Fréttir
Kórtónleikar - Dagur tónlistarskóla
Almennt - ţriđjudagur 16.feb.10 10:04 - Lestrar 929

Dagur tónlistarskóla landsins er árlegur viðburður og verður að þessu sinni laugardaginn 27. febrúar n.k. Tónlistarskól Húsavíkur fagnar þessum degi sérstaklega og stendur fyrir fjölmennum kórtónleikum
í sal Borgarhólsskóla á Húsavík kl. 15:00.
Enginn aðgangseyrir er á viðburðinn og allir hjartanlega velkomnir.
Upp hefja raust sína eftirtaldir kórar:
Barnakór Húsavíkur, stjórnandi Hólmfríður Benediktsdóttir
Iðnu Lísurnar, stjórnandi Lísa McMaster
Kirkjukór Húsavíkur, stjórnandi Judit György
Gospelkór Húsavíkurkirkju, stjórnandi Guðni Bragason
Karlakórinn Hreimur, stjórnandi Aladár Rácz
Sólseturskórinn, stjórnandi Sigurður Hallmarsson
Þess má einnig geta að á sunnudaginn 28. febrúar verður haldin
"Uppskeruhátíð tónlistarskóla" í sama sal kl. 16:00.
Þar verða flutt valin atriði af öllum námsstigum.
Úr þessum hópi verða valin þrjú atriði sem svo verða send áfram á svæðishátíð.
Hún verður haldin í Ketilhúsinu á Akureyri þann 13. mars.
Í Ketilhúsinu koma saman nemendur frá tónlistarskólum norðurlands og austfjarða. Þar verður svo valinn hópur nemenda sem síðan fer suður til Reykjavíkur þar sem loka keppni fer fram þann 27. mars.
Þar mæta fulltrúar frá öllum landsfjórðungum og keppa sín á milli.

Sjá má myndir frá Kórtónleikunum 2009 hér á þessari slóð.
Til baka